Úthlutunarreglur Menningarráð Vesturlands vegna verkefnastyrkja 2010.
Umsóknarfrestur rennur út 18. janúar 2010
1. Tilgangur styrkjanna er að efla menningarstarfsemi á Vesturlandi samkvæmt samningi sveitarfélaga á Vesturlandi, Menntamálaráðuneytis og Iðnaðarráðuneytis.
2. Umsækjendur geta verið einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög á Vesturlandi.
3. Árið 2010 mun Menningarráð Vesturlands leggja áherslu á eftirfarandi:
- Menningarstarfsemi sem skapað hefur sér sess í menningarlífi á Vesturlandi og eykur listrænt starf og frumkvöðlastarf.
- Verkefni sem hvetja ungt fólk til iðkunar menningar- og listsköpunar.
- Verkefni sem draga fram menningarleg séreinkenni Vesturlands.
- Atvinnuskapandi verkefni á sviði menningar lista- og menningarferðaþjónustu.
- Menningarstarfsemi sem stuðlar að samstarfi milli svæða á Vesturlandi og á landsvísu.
Menningarráð hefur áhuga á því að styðja við verkefni sem stuðla að menningarsamstarfi hérlendis og erlendis. Líkt og undanfarin ár mun Menningarráð Vesturlands auglýsa viðburðarviku 22-30 apríl 2010
4. Styrkir ráðsins geta aldrei numið hærri fjárhæð en helmingi alls kostnaðar við verkefni.
5. Umsókninni skal fylgja greinargóð lýsing á verkefninu með verkáætlun og tímasetningum, ítarleg fjárhagsáætlun (kostnaðar- og tekjuáætlun) og upplýsingar um skipuleggjendur.
6. Umsækjandi ber ábyrgð á að fullnægjandi leyfi séu fyrir framkvæmd verkefnis og notkun heimilda ef þarf, sem og öðrum þáttum verkefnisins.
7. Menningarráð Vesturlands og styrkþegi gera með sér sérstakan samning sem m.a. kveður á um fyrirkomulag greiðslu, lokaskýrslu og eftirfylgni.
8. Menningarráðið leggur áherslu á að styrkja nýsköpun og sjálfstæð verkefni en horfir síður til hefðbundnins menningarstarfs, rekstrar- eða stofnkostnaðar. Annað sem fellur utan verksviðs ráðsis má nefna: útgáfa geisladiska, undirbúningur eða útgáfa bóka, skráning upplýsinga, merking eða endurbætur húsnæðis, starfsemi íþróttafélaga, bæjarhátíðir, listiðnaður, almennar samkomur, (s.s. tónleikar og sýningar án sýnilegrar sérstöðu), safnaðarstarf og hefðbundið skólastarf. Ráðið styrkir ekki verkefni sem er lokið áður en ákvörðun um styrkveitingu hefur verið tekin.
9. Styrkþegi skal skila lokaskýrslu um framkvæmd og fjárhagsleg uppgjör verkefnisins fyrir 15. desember ár hvert. Að öðru leyti ber styrkþega að veita Menningarráði Vesturlands upplýsingar um framkvæmd verkefnisins þegar og ef eftir því er leitað. Hafi greinargerð um framkvæmd verkefnisins ekki borist Menningarráði Vesturlands fyrir 15. desember fellur síðari hluti styrksins niður. Menningarráð áskilur sér rétt til endurkröfu styrkveitinga hafi verkefnið ekki verið unnið samkvæmt samningi.
10. Umsóknir þurfa að vera á eyðublöðum frá Menningarráðinu og póststimplaðar eigi síðar en síðasta umsóknardag 18.janúar 2010. Þannig samþykkt á stjórnarfundi þann 1. október 2010